Vitnisburðir
"Samvinna við Stika hefur tryggt Landlæknis- embættinu aðgang að ávallt nýjustu sérþekkingu og ráðgjöf um öryggismál og gert embættinu kleift að hlíta lögum, reglum og viðurkenndum stöðlum í upplýsingaöryggismálum." Sigríður Haraldsdóttir |
| Stiki og Sjá í samstarf |
|
|
|
| Mánudagur, 06. apríl 2009 13:03 |
|
Share Fyrirtækin Stiki og Sjá hafa undirritað samstarfssamning um gæðastjórnun í hugbúnaðarþróun. Skv. samningnum mun Sjá rýna viðmót og virkni hugbúnaðar sem þróaður er hjá Stika. Um er að ræða tvenns konar hugbúnað, annars vegar Risk Management Studio hugbúnað til áhættumats í rekstri og hins vegar hugbúnað fyrir heilbrigðisþjónustu til að meta gæði heilbrigðisþjónustu með svonefndri RAI-mæliaðferð.
Stiki hefur um árabil þróað hugbúnaðarlausnir fyrir erlendan markað og hefur rekið fyrirtæki í Bretlandi frá árinu 2006. Um þessar mundir er að koma út ný og endurhönnuð útgáfa af áhættumatshugbúnaðinum RM Studio sem tekur mið af nýjasta Windows og Office útliti Microsoft. RM Studio var sýnt á CeBit tæknisýningunni í Hannover í Þýskalandi í mars og fóru viðtökur fram úr björtustu vonum. Réði þar miklu að útlit og viðmót hugbúnaðarins hefur verið endurhannað og einfaldað og virkni bætt prófuð í samstarfi við Sjá. |
Námskeið í boði
Stiki býður námskeið fyrir stjórnendur og starfsmenn í upplýsingaöryggi, gæðamálum og stöðlunum ISO 9001 og ISO 27001. Sjá nánar hér.












