ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Kreditkort hf. hefur notið sérfræðiaðstoðar Stika við innleiðingu öryggisstaðalsins ISO/IEC 27001. Hefur samstarf Kreditkorts hf. við Stika verið með miklum ágætum."

Nanna Huld Aradóttir
fyrrverandi yfirmaður innri endurskoðunar hjá Kreditkorti

Case Studies

Hugbúnaður frá Stika

Riskmanagementstudio.com

Vottanir

bsivottanir

Gold_Partner164x47

ACP_RGB

Skyggnir fær staðfesta alþjóðlega öryggisvottun Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 12. janúar 2011 13:56
Share

skyggnirBritish Standards Institution (BSI) hefur staðfest vottun Skyggnis um upplýsinga-, öryggis- og stjórnkerfi til næstu þriggja ára samkvæmt alþjóðlegum staðli.

Skyggnir hlaut fyrst staðfesta vottun á þessu sviði árið 2004.

Friðrik Þ. Snorrason framkvæmdastjóri Skyggnis segir í tilkynningu um málið að vottun BSI sé mikilvægur þáttur fyrir starfsemi Skyggnis, sem leggi áherslu á að vera í fararbroddi í rekstri, viðhaldi og uppbyggingu upplýsingakerfa.

"Vottunin staðfestir að trúnaður, heilindi og aðgengi að upplýsingakerfum séu tryggð. Jafnframt er tryggt að upplýsingar séu aðeins aðgengilegar þeim sem hafa aðgangsheimildir. Þá eru allir rekstrarþættir, sem snúa að stjórn öryggismála, skjalfestir og fylgja gildandi lögum og reglugerðum er varða rekstur fyrirtækisins," segir Friðrik Þ. Snorrason framkvæmdastjóri Skyggnis um vottun BSI.

Skyggnir ehf. er tækni- og rekstrarþjónustufyrirtæki Nýherjasamstæðunnar. Félagið sérhæfir sig í hönnun, uppsetningu, viðhaldi og rekstri upplýsingatæknilausna. Hjá Skyggni starfa um 160 manns.

Skyggnir notar innleiðingarhugbúnaðinn Risk Management Studio v2.3 frá Stika.  Nánari upplýsingar um RM Studio er að finna hér.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 178 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600