ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Við hjá upplýsingatækni- sviði Landspítala Háskólasjúkrahúss erum ánægð með störf Stika og teljum að ferli við innleiðingu upplýsingaöryggis hafi gengið mjög vel."

Ólafur Aðalsteinsson
fyrrverandi deildarstjóri stoðdeildar upplýsingatæknisviðs LSH

Case Studies

Hugbúnaður frá Stika

Riskmanagementstudio.com

Vottanir

bsivottanir

Gold_Partner164x47

ACP_RGB

Svana Helen Björnsdóttir býður sig fram til formanns SI Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Miðvikudagur, 15. febrúar 2012 09:27
Share

Svana Helen Björnsdóttir, stofnandi og forstjóri Stika, gefur kost á sér í formannsembætti Samtaka iðnaðarins.

Iðnþing 2012 verður haldið í Íþrótta- og sýningarhöllinni Laugardal fimmtudaginn 15. mars 2012. Í tengslum við Iðnþing fer að venju fram kosning til stjórnar Samtaka iðnaðarins. Formaður er kjörinn í sérstakri kosningu til árs í senn. Núverandi formaður Helgi Magnússon hefur setið í sex ár og er því ekki kjörgengur samkvæmt lögum SI.

Eftirfarandi er framboðsbréf Svönu til félagsmanna í Samtökum iðnaðarins.

 

 

Ágæti félagsmaður í Samtökum iðnaðarins.

Nú líður að kosningu til stjórnar í samtökunum okkar og að venju fer fram formannskosning. Undirrituð hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns.

svana_litÉg er rafmagnsverkfræðingur og lauk námi í raforkuverkfræði frá Tækniháskólanum í Darmstadt í Þýskalandi 1987. Meðan á námi stóð starfaði ég á sumrin í Vélsmiðjunni Héðni, á rafmagnsverkstæði Fálkans og á rannsóknarstofu Siemens í München í Þýskalandi. Ég starfaði hjá AEG í Þýskalandi 1986-1987 en eftir það hóf ég störf hjá Verk- og kerfisfræðistofunni Streng í Reykjavík og vann þá m.a. fyrir Rarik. Árið 1992 stofnaði ég eigið fyrirtæki, sem heitir Stiki ehf. Fyrirtækið starfar á sviði upplýsingatækni og á 20 ára afmæli á þessu ári. Árið 2006 stofnaði ég fyrirtækið Stiki Ltd. í Bretlandi sem sinnir erlendum sölu- og markaðsmálum. Öll starfsemi Stika hefur verið öryggis- og gæðavottuð frá 2002 og fyrirtækið er samstarfsaðili bresku staðlastofnunarinnar BSI og gullvottaður samstarfsaðili Microsoft. Viðskiptavinir Stika og samstarfsaðilar eru í 16 löndum víða um heim.

Ásamt störfum mínum við rekstur í eigin fyrirtæki hef ég verið mjög virk í félagsmálum og nú síðustu árin einkum innan SI. Ég hef verið í stjórn Samtaka sprotafyrirtæka frá 2005 og verið formaður þeirra síðan 2009. Sem fulltrúi SI í Hátækni- og sprotavettvangi frá stofnun 2008, hef ég beitt mér fyrir bættum rekstrarskilyrðum allra fyrirtækja og sér í lagi fyrirtækja sem stunda nýsköpun af einhverju tagi. Á þessum vettvangi sameinast fulltrúar ráðuneyta og forystumenn í atvinnulífi um að ræða af skynsemi og heilindum um íslenskt atvinnulíf og um það sem betur má fara í samskiptum fyrirtækja og stjórnvalda. Umtalsverður árangur hefur náðst af þessu samstarfi, m.a. við ráðningu atvinnulausra gegnum Starfsorku inn í nýsköpunar¬fyrirtæki, endurmenntun atvinnulausra m.t.t. þarfa fyrirtækja og endurgreiðsla á rannsóknar- og þróunarkostnaði fyrirtækja í nýsköpunarverkefnum. Allt miðar þetta að eflingu íslensks atvinnulífs til framtíðar.

Ég hef ritað fjölda greina og flutt ótal erindi um atvinnumál, nýsköpun, frumkvöðlastarfsemi, menntamál og atvinnuþátttöku kvenna. Þá hef ég talað fyrir því á vettvangi Vísinda- og tækniráðs að menntakerfið slái taktinn með atvinnulífinu betur en nú er, ekki aðeins í raunvísindagreinum heldur einnig og ekki síður í iðngreinum. Ég hef mikla reynslu af stjórnunarstörfum og hef m.a. setið í stjórnum Landsnets hf., Haga hf., Stika ehf., Verkfræðingafélags Íslands, Persónuverndar og var formaður Skýrslutæknifélags Íslands um fjögurra ára skeið. Kirkjuþingsfulltrúi hef ég verið síðan 2010.

Til atvinnusköpunar þurfum við hugvit og verkvit, auk siðvits. Við þurfum að efla nýsköpun þvert á hefðbundnar atvinnugreinar og tryggja jafnræði atvinnugreina. Við þurfum að efla tækni- og iðnmenntun og hafa verðmætasköpun að markmiði við menntun fólks.

Ég mun sem formaður beita mér af einurð og heilindum fyrir eflingu íslensks iðnaðar og hagsmunum allra fyrirtækja innan SI. Iðngreinarnar eru að vonum ólíkar og hagsmunirnir ekki alltaf þeir sömu, en það er mikilvægt að innan SI getum við átt heiðarleg og málefnaleg samtöl um grundvallarhagsmuni og gildi. Samtök okkar þurfa að vera virk við mótun atvinnustefnu til framtíðar. Við þurfum á öllum okkar fyrirtækjum að halda, öllum starfsgreinum, allri breiddinni. Þótt fyrirtæki okkar starfi á ólíkum sviðum styðja þau öll á einhvern hátt hvert við annað. Mikilvægt er að svo verði áfram. Nú er brýn þörf að efla íslenskt atvinnulíf og forysta SI hefur einstakt tækifæri til að láta verkin tala í því efni.

Ég óska eftir stuðningi þínum í kosningunni sem framundan er.

Viljir þú ræða við mig um framboðið og SI er þér velkomið að senda mér póst eða slá á þráðinn. Það kann líka að vera að ég slái á þráðinn við tækifæri.

Með kærri kveðju,

Svana Helen Björnsdóttir, forstjóri Stika

(sími: 8999200 – tölvupóstur: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. )

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 178 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600