| Lausnir |
|
|
|
|
Share Við þróun hugbúnaðarlausna leggur Stiki sig fram um að þróa vandaðar lausnir sem eru tæknilega sambærilegar við það sem best gerist á hverjum tíma. Í lausnum Stika eru alþjóðlegir staðlar til grundvallar. Öryggi hugbúnaðar er hringamiðjan sem lausnir Stika snúast um. Hugbúnaður Stika er forritaður í forritunarmálunum C# og Delphi. Mikil áhersla er lögð á samhæfð vinnubrögð þar sem nákvæm greining á þörfum notenda og ítarlegar prófanir í samræmi við þær þarfir eru í brennipunkti. Hugbúnaðargerðin er vottuð samkvæmt ISO 9000 og ISO/IEC 27001. Unnið er samkvæmt Agile hugbúnaðarferli Microsoft, Microsoft Solution Framework (MSF). Hugbúnaðargerð Stika er:
Traust Ferli við hugbúnaðargerð innan Stika eru vottuð skv. ISO 9000 og ISO/IEC 27001. Lögð er áhersla á vandvirkni, öryggi og traust. Kvik Hugbúnaðargerðin byggir á aðferðum sem hafa að leiðarljósi stuttar og virkar samskiptaleiðir sem einfaldar og flýtir aðlögun að breytingum. Heiðarleg Milli viðskiptavinarins/notandans viljum við að ríki heiðarleiki. Forðast er að slá ryki í augu viðskiptavinarins. Tekið er öllum athugasemdum fagnandi og fúslega er viðurkennt hvar hlutir mega betur fara. |











