ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Við hjá upplýsingatækni- sviði Landspítala Háskólasjúkrahúss erum ánægð með störf Stika og teljum að ferli við innleiðingu upplýsingaöryggis hafi gengið mjög vel."

Ólafur Aðalsteinsson
fyrrverandi deildarstjóri stoðdeildar upplýsingatæknisviðs LSH

RM Studio Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

rmsstudio_color_06102009

Hugbúnaðurinn Risk Management Studio, hér eftir nefndur RM Studio, er hugbúnaður til áhættugreiningar sem hugsaður er fyrir stofnanir, fyrirtæki og sveitarfélög sem eru að leitast eftir lausn sem er fær um að hjálpa til við áhættustjórnunarferlið. Hugbúnaður okkar var hannaður eftir hugmyndafræði öryggisstaðlanna ISO/IEC 27001:2005 og ISO/IEC 27001:2005. Síðan þá hefur hugbúnaðurinn verið þróaður til þess að meðhöndla aðla staðla, auk þess sem notendur geta nú aðlagað hugbúnaðinn að sínum þörfum.

Hugbúnaðurinn er byggður upp á nokkrum mismunandi kerfiseiningum.

Núverandi einingar eru:

  •   Greiningar og Meðferðar eining sem leiðir notendur í gegnum áhættugreiningar ferlið á skipulagðan og skilvirkan máta
  •   Rekstrarsamfellu eining sem hjálpar notendum að þróa, prófa og viðhalda áætlunum um rekstrarsamfellu.

RM Studio er hannaður með það að markmiði að einfalda ferlið í kringum áhættugreiningu og áhættustjórnun. Frekari upplýsingar um hugbúnaðinn má nálgast á heimasíðu RM Studio.

Helsti ávinningur notenda:

  • Tímasparnaður
  • Færri ráðgjafatímar
  • Auðvelt að rekja aðgerðir
  • Auðveldar innleiðingu upplýsingaöryggis
  • Öflugur skýrslugjafi
  • Áhættueftirlit og áhættumat

Eftirfarandi alþjóðlegir staðlar eru í boði fyrir RM Studio:

  • ISO 27001
  • ISO 27002
  • ISO 27011
  • ISO 9001
  • ISO 14001
  • BS 25999-2
  • ISO 22301
  • PCI DSS 1&2
  • WLA-SCS
  • ISO 13485
  • German IT-Grundshutz

Einnig bjóðum við uppá aðra staðla auk þess sem listi okkar yfir tiltækilega staðla er stöðugt að stækka. Einnig geta starfsmenn Stika innleitt staðla eftir beiðni notenda.

RM Studio er Microsoft samhæfður hugbúnaður og þróaður í Microsoft Visual Studio. Hugbúnaðarþróun fer fram skv. sérstöku ferli, Microsoft Solution Framework. Hún er, eins og öll önnur starfsemi Stika, vottuð af British Standards Institution skv. ISO 9001:2008 og ISO/IEC 27001.

Forveri RM Studio er Stiki OutGuard.

Pantaðu kynningu með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 178 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600