Vitnisburðir
Ný og endurbætt útgáfa af áhættumatshugbúnaðinum RM Studio er komin út. Í útgáfu 3.0. eru níu staðlar innbyggðir í kerfið sem er mikil og góð viðbót við það. Áður var einungis einn staðall með kerfinu. Notendur geta því valið þann staðal sem þeir vilja fá, einn eða fleiri. Nú gefst notendum kostur á að setja inn ýmsa staðla, framkvæma frávikagreiningu (gap analysis) gagnvart þessum stöðlum. Skýrslukerfið er nú orðið innbyggt í RM Studio og því þarf ekki að keyra skýrslukerfið MS Reporting Server samhliða RM Studio. www.riskmanagementstudio.com |
| Ráðgjöf og þjónusta |
|
|
|
|
Share
Stiki veitir ráðgjöf og þjónustu á sviði upplýsingatækni með áherslu á upplýsingaöryggismál. Á þjónustu- og ráðgjafasviði eru meginþættir starfseminnar þessir:
Stiki aðstoðar fyrirtæki og stofnanir sem sækjast eftir að fá starfsemi sína vottaða samkvæmt öryggisstaðlinum ISO/IEC 27001 og/eða gæðastaðlinum ISO 9001. Stiki aðstoðaði Landmælingar Íslands við innleiðingu gæðastjórnkerfis. Stiki veitir einnig aðstoð við uppsetningu netþjóna og útstöðva, dulkóðun gagna og framkvæmir heilleikaprófun gagna. Að auki sinnir Stiki fræðslu um öryggis- og gæðastaðla, sjá nánar um það hér. |













