Vitnisburðir
"Samvinna við Stika hefur tryggt Landlæknis- embættinu aðgang að ávallt nýjustu sérþekkingu og ráðgjöf um öryggismál og gert embættinu kleift að hlíta lögum, reglum og viðurkenndum stöðlum í upplýsingaöryggismálum." Sigríður Haraldsdóttir |
| Innleiðing gæðakerfis |
|
|
|
|
Stiki aðstoðar fyrirtæki við innleiðingu gæðakerfis skv. kröfustaðlinum ISO 9001:2008. ISO 9000 staðlaröðin er samsett úr fjórum alþjóðlegum stöðlum sem innihalda leiðbeiningar um hvernig á að þróa og setja á laggirnar gott gæðakerfi (Quality Management System). Staðlarnir lúta ekki að sérstökum vörum, heldur eiga jafn vel við í framleiðslu- og þjónustugreinum. Gæðakerfi vísar til allra þeirra verka sem framkvæmd eru til að uppfylla gæðakröfur viðskiptavina ásamt stjórnskipulagi fyrirtækisins. Til að tryggja að kröfum viðskiptavina sé mætt, kemur óháður þriðji aðili að því að gera úttekt á kerfinu til að ganga úr skugga um að gæðakerfið sé virkt og að það virki. Þegar skoðunaraðili hefur komist að þeirri niðurstöðu fær viðkomandi fyrirtæki "vottun" og fær skjal því til staðfestingar. Ekki er víst að öll fyrirtæki sjái sér hag í vottun, en kjósi engu að síður að setja gæðakerfi sitt upp í samræmi við ISO-staðlana og vinna eftir því. Eftirfarandi átta grunnatriði hafa verið skilgreind af ISO sem nauðsynlegt er fyrir fyrirtæki að tileinka sér ætli þau að ná að uppfylla gæðamarkmið sín.
Grunnkröfur ISO 9001 Segðu hvað þú gerir Hafa skal í huga að mikil samlegðaráhrif eru í innleiðingu gæðakerfis skv. ISO 9001 og innleiðingu upplýsingaöryggis skv. ISO/IEC 27001. Í báðum tilvikum er stefnumótun og skráning verklags mikilvægur þáttur. |











