ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

Ný og endurbætt útgáfa af áhættumatshugbúnaðinum RM Studio er komin út. Í útgáfu 3.0. eru níu staðlar innbyggðir í kerfið sem er mikil og góð viðbót við það. Áður var einungis einn staðall með kerfinu.  Notendur geta því valið þann staðal sem þeir vilja fá, einn eða fleiri.  Nú gefst notendum kostur á að setja inn ýmsa staðla, framkvæma frávikagreiningu (gap analysis) gagnvart þessum stöðlum.  Skýrslukerfið er nú orðið innbyggt í RM Studio og því þarf ekki að keyra skýrslukerfið MS Reporting Server samhliða RM Studio.  www.riskmanagementstudio.com

Nethögun og fjarskipti Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Stiki hefur mikla reynslu af uppbyggingu öruggra fjarskiptaneta þar sem ýmsum ráðstöfunum er beitt til að tryggja öryggi gagna í netsamskiptum. Öryggisstöðlunum ISO/IEC 27001 og ISO/IEC 27002 er beitt á kerfisbundinn hátt til að tryggja örugg samskipti. Lykilatriði er val á öryggisráðstöfunum sem hæfa eðli gagnanna sem senda á yfir viðkomandi net. Þar má nefna hentugar nettengingar, ýmist á lokuðu neti eða um Internetið, og netbúnað sem stenst öryggis- og afkastakröfur, þ.á m. eldveggi og beina. Nota má dulkóðun til að tryggja leynd gagna og til auðkenningar notenda. Að sama skapi verður að athuga ýmsa eiginleika nettenginga á borð við bandbreidd og senditíma til að tryggja tiltækileika gagna.

Heilbrigðisnet matskerfa

Stiki hefur haft með höndum hönnun og rekstur á öruggu lokuðu heilbrigðisneti, Heilbrigðisneti matskerfa, sem tengir saman fjölmargar stofnanir í heilbrigðisþjónustu um land allt. Á netinu eru rekin kerfin Stiki RAI Nursing Home, Stiki RAI Home Care, Stiki RAI Post-Acute care, Stiki RAI Mental Health og Stiki Vistunarmat. Þar sem unnið er með viðkvæmar persónuupplýsingar í þessum kerfum er upplýsingaöryggi afar mikilvægur þáttur á heilbrigðisneti matskerfa. Dulkóðun og skilríki eru notuð til þess að auðkenna notendur og tryggja öryggi í gagnasendingum. Stofnanir tengjast matskerfum sem hýst eru af Stika með sýndareinkanetstengingum (Virtual Private Network) yfir lokaðar víðnetstengingar, s.s. ISDN, ADSL+, Frame Relay og IP-net.

Líkanagerð og hermun

Stiki hefur einnig reynslu af líkanagerð af tölvunetum. Líkanagerð og hermun tölvuneta má nota til þarfagreiningar við uppbyggingu netkerfa og getur aðstoðað við hönnun nýrra neta og við breytingar á núverandi netum. Vönduð hönnun á nethögun leiðir til skilvirkari neta og lægri kostnaðar. Álags- og öryggisprófanir eru einnig mögulegar á netlíkönum auk þess sem hægt er að athuga áhrif innleiðingar nýrra tölvukerfa á núverandi tölvunet.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 178 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600