| Samfelldur rekstur |
|
|
|
|
Share
Markmið stjórnunar á rekstrarsamfellu er að vernda mikilvæga starfsemi gegn áhrifum meiriháttar bilana og áfalla. Mikilvægt er að fyrirtæki geri sér grein fyrir mögulegum afleiðingum áfalla og geri ráðstafanir til að minnka hættu á röskun í rekstri. Áætlun um samfelldan rekstur/viðbragðsáætlun hefur það markmið að takmarka áhrif meiriháttar bilana og áfalla og flýta endurreisn starfseminnar sem fyrir bilun eða áfalli verður. Í slíkri áætlun eru m.a. tilgreindir aðilar með afmörkuð hlutverk í neyðarástandi og aðgerðir sem framkvæma skal til að endurreisa starfsemi. Stiki býður ráðgjöf vegna stjórnunar rekstarsamfellu og aðstoð við gerð áætlunar um samfelldan rekstur. Stuðst er m.a. við staðalinn BS 25999 Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. við Stika til að fá frekari upplýsingar. |












