Vitnisburðir
Ný og endurbætt útgáfa af áhættumatshugbúnaðinum RM Studio er komin út. Í útgáfu 3.0. eru níu staðlar innbyggðir í kerfið sem er mikil og góð viðbót við það. Áður var einungis einn staðall með kerfinu. Notendur geta því valið þann staðal sem þeir vilja fá, einn eða fleiri. Nú gefst notendum kostur á að setja inn ýmsa staðla, framkvæma frávikagreiningu (gap analysis) gagnvart þessum stöðlum. Skýrslukerfið er nú orðið innbyggt í RM Studio og því þarf ekki að keyra skýrslukerfið MS Reporting Server samhliða RM Studio. www.riskmanagementstudio.com |
| Úttektir |
|
|
|
|
Stiki hefur um margra ára skeið gert ýmis konar úttektir fyrir viðskiptavini sína. Meðal þeirra úttekta sem gerðar hafa verið eru úttektir á öryggi persónuupplýsinga að beiðni Persónuverndar (ytri úttektir), en einnig að beiðni stofnana og fyrirtækjanna sjálfra (innri úttektir). Við úttektir er viðeigandi stöðlum beitt, t.d. úttektarstaðlinum EN ISO 19011:2002. Samkvæmt þeim staðli merkir úttekt: „Kerfisbundið, óháð og skjalfest ferli er miðar að því að afla úttektargagna og meta þau hlutlægt í því skyni að ákvarða að hve miklu leyti úttektarviðmið séu uppfyllt.“ Kröfum um gæði, öryggi, notagildi og umhverfisáhrif er m.a. mætt með úttektum. Innri úttektirInnri úttektir, stundum nefndar úttektir fyrsta aðila, eru gerðar af eða í þágu fyrirtækisins sjálfs til notkunar innanhúss og geta þær verið grunnurinn að eigin yfirlýsingu fyrirtækisins um samræmi í verklagi. Ytri úttektirYtri úttektir eru úttektir annars eða þriðja aðila. Úttektir annars aðila eru gerðar af þeim sem hafa hagsmuna að gæta í fyrirtækinu, s.s. viðskiptavinum, eða af öðrum persónum í þeirra þágu. Úttektir þriðja aðila eru úttektir sem gerðar eru af óháðu fyrirtæki. Slík fyrirtæki veita vottun eða skráningu í samræmi við kröfur eins og er að finna í kröfustöðlum, t.d. ISO 9001, ISO 14001 og ISO/IEC 27001. Viljinn til að vanda sig og gera vel býr í flestum mönnum. Úttektir eru ekki nýtt fyrirbrigði, þær eru staðfesting á því að hlutirnir séu eins og vænst er. |












