ÍslenskaEnska

Vitnisburðir

"Kreditkort hf. hefur notið sérfræðiaðstoðar Stika við innleiðingu öryggisstaðalsins ISO/IEC 27001. Hefur samstarf Kreditkorts hf. við Stika verið með miklum ágætum."

Nanna Huld Aradóttir
fyrrverandi yfirmaður innri endurskoðunar hjá Kreditkorti

Gæðastefna Skoða sem PDF skjal Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Tilgangur

Þessi gæðastefna lýsir áherslu stjórnar Stika á gæði vöru og þjónustu og að gæðin sé í samræmi við væntingar viðskiptavina. Stjórnin gerir sér grein fyrir að gæðamál eru stöðugt á dagskrá og vanda þarf til verka við úrlausn þeirra. Fagleg vinnubrögð eru lykillinn að árangri og því er þessi gæðastefna sett. Innleiðing og framkvæmd stefnunnar er mikilvæg til að fullvissa starfsmenn Stika og viðskiptavini um áherslur í gæðamálum. Stjórn Stika hefur samþykkt þessa stefnu og styður við framkvæmd hennar.

Umfang

Stefna þessi tekur til allra þeirra sem starfa hjá Stika eða samningsbundið fyrir Stika. Allir starfsmenn Stika og samningsbundnir viðskiptavinir bera ábyrgð á framkvæmd þessarar stefnu.

Markmið

Það er markmið Stika að vörur og þjónusta fyrirtækisins uppfylli ávallt kröfur og væntingar viðskiptavina og starfsmanna um fagleg vinnubrögð. Það er enn fremur markmið Stika að vera leiðandi á þeim sviðum sem fyrirtækið starfar á. Það er því stefna Stika að:

  1. Tryggja að fyrirtækið skili umsamdri þjónustu á umsömdum tíma.
  2. Veita viðskiptavinum góða og faglega þjónustu sem byggir á heilindum starfsmanna og gagnkvæmu trausti milli aðila.
  3. Gæta hagkvæmni í starfsemi þannig að rekstur Stika skili viðskiptavinum hámarksþjónustu fyrir umsamdar greiðslur, hluthöfum arði og starfsmönnum góðum launum.
  4. Beita aðferðum altækrar gæðastjórnunar þar sem allir starfsmenn taka virkan þátt í að vinna stöðugt að endurbótum.
  5. Veita starfsmönnum gott vinnuumhverfi og hvatningu í starfi og styðja frumkvæði þeirra.
  6. Viðhalda og efla fagþekkingu starfsmanna.
  7. Fylgja lögum, reglugerðum og reglum sem lúta að rekstri Stika, stjórnsýslulögum, lögum um persónuvernd, upplýsingalögum og öðrum lögum sem kunna að eiga við.
  8. Fylgja öllum samningum sem Stiki er aðili að og varða gæðamál á einhvern hátt.

Leiðir að markmiði

Leiðir Stika að ofangreindum markmiðum eru eftirfarandi:

  1. Viðhalda skipulagshandbók með verkferlum, verklagsreglum og leiðbeiningum um allt er rekstur Stika varðar með þeirri áherslu að tryggja sem best gæði og áreiðanleika í starfseminni.
  2. Allir starfsmenn Stika fylgi skipulagshandbók og öllum öðrum fyrirmælum stjórnenda Stika.
    Allir starfmenn Stika fái þjálfun og fræðslu varðandi gæðamál og eigin ábyrgð í þeim málum.
    Öll starfsemi fylgi ISO 9001:2008.
  3. Viðhalda faggildri vottun skv. ISO 9001:2008.

Ábyrgð

Ábyrgð við framkvæmd og viðhald gæðastefnu skiptist á eftirfarandi hátt:

  1. Stjórn Stika ber ábyrgð á gæðastefnu þessari og endurskoðar hana reglulega.
  2. Skipulagsstjóri Stika ber ábyrgð á framkvæmd gæðastefnunnar og beitir til þess viðeigandi stöðlum og vinnuferlum.
  3. Allir starfsmenn Stika bera ábyrgð á að fylgt sé þeim vinnuferlum sem tryggja eiga framkvæmd gæðastefnunnar. Viðskiptavinir, samstarfsaðilar og birgjar bera ábyrgð á að fylgt sé samningsbundnum verkferlum sem tryggja eiga framkvæmd stefnunnar.
    Öllum starfsmönnum Stika ber að vinna samkvæmt gæðastefnunni. Þeir bera ábyrgð á að tilkynna frábrigði og galla sem varða afhendingu vöru og þjónustu eða væntingar viðskiptavina.

Endurskoðun

Þessi stefna er endurskoðuð árlega og oftar ef þörf krefur til þess að tryggja að hún samrýmist markmiðum með rekstri Stika.

Samþykki

Með samþykkt þessarar gæðastefnu fellur úr gildi gæðastefna sem samþykkt var af stjórn Stika þann 17. október 2011

Reykjavík, 2. október 2012

Fyrir hönd stjórnar,
Svana Helen Björnsdóttir,
forstjóri Stika ehf.

 


© Stiki - Information Security - Laugavegur 178 - IS-105 Reykjavik - Phone: +354 5700 600