|
Eins og sjá má af þessu yfirliti hér að neðan hafa mjög ólík fyrirtæki og stofnanir notið þjónustu Stika, enda kappkostar Stiki að vinna hvert verkefni í nánu samstarfi við viðskiptavini og taka mið af þörfum þeirra.
Eftirfarandi er yfirlit yfir nokkra af helstu viðskiptavinum Stika, raðað eftir eðli rekstrar.
Bankar og fjármálafyrirtæki
Borgun hf. (Kreditkort hf. (Mastercard))-
Innleiðing upplýsingaöryggis skv. ÍST ISO/IEC 27001:2005 og ÍST ISO/IEC 27002:2005, ráðgjöf, stefnumótun, gerð áætlana um samfelldan rekstur, áhættumat.
Stiki var Kreditkorti hf. til aðstoðar við innleiðingu upplýsingaöryggis. Eftir þá vinnu liggur fyrir hjá félaginu öryggishandbók Kreditkorts á veftæku formi, áhættumat upplýsingaeigna félagsins og áætlun um samfelldan rekstur. Allt unnið eftir forsniði Stika.
Kreditkort notar RM Studio við gerð áhættumats fyrir fyrir vinnslu upplýsinga hjá fyrirtækinu.
- NASDAQ OMX - Verðbréfaskráning Íslands
-
Innleiðing upplýsingaöryggis skv. ISO/IEC 27001:2005 (áður BS 7799), ráðgjöf, stefnumótun, gerð skipulagshandbókar, greining verkferla, gerð áætlana um samfelldan rekstur, áhættumat.
-
Úttekt á upplýsingakerfum og gerð kerfishandbóka.
-
Ráðgjöf um innleiðingu rafrænna skilríkja.
-
NASDAQ OMX - Verðbréfaskráning Íslands notar RM Studio við gerð áhættumats fyrir vinnslu upplýsinga hjá fyrirtækinu.
Heilbrigðisstofnanir
- Landspítali - háskólasjúkrahús - Upplýsingatæknisvið
-
Innleiðing upplýsingaöryggis skv. ISO/IEC 27001 (áður BS 7799), ráðgjöf, gerð skipulagshandbókar, greining verkferla, gerð áætlana um samfelldan rekstur, áhættumat.
-
Innri úttektir gerðar skv. ÍST EN ISO 19011:2002.
-
Námskeið fyrir alla starfsmenn upplýsingatæknisviðs LSH um upplýsingaöryggisstaðlana ÍST ISO/IEC 27001 og ÍST ISO/IEC 27002.
-
Upplýsingatæknisvið LSH notar RM Studio við gerð áhættumats fyrir vinnslu upplýsinga.
- Landspítali - háskólasjúkrahús - Rannsóknastofa í meinafræði
-
Ráðgjöf varðandi innleiðingu upplýsingaöryggis skv. ISO/IEC 27001 (áður BS 7799)
-
Áhættumat fyrir einstakar vinnslur með persónuupplýsingar.
-
Rannsóknastofa í meinafræði notar RM Studio við gerð áhættumats fyrir vinnslu upplýsinga
Landlæknisembættið -
Innleiðing upplýsingaöryggis skv. ISO/IEC 27002 og ISO/IEC 27001 (áður BS 7799). Gerð skipulagshandbókar á vefformi, greining verkferla, áhættumat með Stiki OutGuard. Hönnun og þróun smitsjúkdómaskrár. Ýmis konar ráðgjöf varðandi upplýsingaöryggi og rekstur upplýsingakerfa hjá embætti landlæknis og sóttvarnalækni.
- Heilbrigðisstofnun Austurlands
-
Innleiðing upplýsingaöryggis skv. ISO/IEC 27002 og ISO/IEC 27001 (áður BS 7799). Gerð skipulagshandbókar á vefformi, greining verkferla, áhættumat með Stiki OutGuard.
- Flestöll hjúkrunar- og dvalarheimili nota RAI hugbúnað frá Stika
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins samanstendur af fimmtán heilsugæslustöðvum í Reykjavík, Seltjarnarnesi, Mosfellsbæ, Kópavogi, Garðabæ og Hafnarfirði, Miðstöð heimahjúkrunar og Heilsuverndarstöð Reykjavíkur þar sem eru til húsa sex miðstöðvar og stjórnsýsla Heilsugæslunnar.
Miðstöð heimahjúkrunar notar sérhæfðan hugbúnað frá Stika, RAI Heimaþjónustu (RAI Home Care), til að meta heilsufar og aðbúnað fólks sem nýtur heilbrigðisþjónustu á heimili sínu.
Iðnfyrirtæki
- Elkem Iceland
-
Tækniráðgjöf
Tenging sjálfvirkra mælikerfa við gagnagrunna Íslenska járnblendifélagsins (nú Elkem Iceland) á Grundartanga.
- Prentsmiðjan Gutenberg
-
Innleiðing ISO/IEC 27002, gerð skipulagshandbóka á vefformi
Stéttarfélög
- VR - Virðing Réttlæti (Verzlunarmannafélag Reykjavíkur)
-
Áhættumat með Stiki OutGuard, nú RM studio.
Opinberar stofnanir
- Persónuvernd
-
Ráðgjöf, eftirlit og úttektir á upplýsingaöryggi hjá fyrirtækjum og stofnunum fyrir Persónuvernd.
- Rannís
-
Hugbúnaðarþróun - hönnun umsjónarkerfis.
- Neyðarlínan
-
Innleiðing öryggisstaðalsins ÍST ISO/IEC 27002, gerð skipulagshandbókar.
- Tryggingastofnun
-
Áhættumat með Stiki OutGuard.
- Verkfræðideild Háskóla Íslands
-
Innleiðing gæðastjórnkerfis samkvæmt ISO 9001.
- Staðlaráð Íslands
-
Kennsla og ráðgjöf.
Orkufyrirtæki
- Landsvirkjun
-
Uppbygging og innleiðing öryggisstjórnkerfis
Stiki hefur verið Landsvirkjun til ráðgjafar um uppbyggingu öryggisstjórnkerfis sem samþætt er gæðakerfi fyrirtækisins.
Beitt er aðferðum öryggisstaðlanna ISO/IEC 27001 og ISO/IEC 27002 auk þess sem gæðastaðli ISO 9001 er beitt. Landsvirkjun notar Stiki OutGuard við framkvæmd áhættumats á öryggi upplýsinga.
Ráðuneyti
- Stjórnarráð Íslands
-
Innleiðing öryggisstaðalsins ÍST ISO/IEC 27002 hjá öllum ráðuneytum.
- Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneyti
-
Rekstur, hýsing og þróun upplýsingakerfa, samþætting ólíkra tölvukerfa, áhættumat.
Stiki hefur með höndum rekstur og þróun nokkurra upplýsingakerfa fyrir Heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið. Þessi kerfi eru tengd saman í öruggt heilbrigðisnet sem Stiki hefur séð um. Þessi kerfi eru RAI (Residential Assessment Instrument) matskerfi fyrir öldrunar- og dvalarheimili, RAI fyrir heimaþjónustu fyrir heilsugæsluna í Reykjavík og Velferðarsvið Reykjavíkurborgar (áður Félagsþjónustan) auk vistunarmats aldraðra sem notað er af matshópum á vegum sveitafélaganna.
Í þessum verkefnum hefur þurft að samþætta við önnur kerfi og má þar nefna samþættingu við upplýsingakerfi Tryggingarstofnunar Ríkisins. Núna er í gangi samþættingarverkefni upplýsingakerfisins Sögu frá Theriak við RAI upplýsingakerfin.
- Dómsmálaráðuneytið
-
Áhættumat með Stiki OutGuard
Dómsmálaráðuneytið notar Stiki OutGuard við gerð áhættumats hjá ráðuneytinu og undirstofnunum t.d. Fangelsismálastofnun og Umferðarstofu.
Sveitarfélög
- Bæjarskrifstofur Mosfellsbæjar
-
Innleiðing ISO/IEC 27002, gerð skipulagshandbókar á vefformi, áhættumat með Stiki OutGuard.
- Bæjarskrifstofur Garðabæjar
-
Innleiðing ISO/IEC 27002, gerð skipulagshandbókar á vefformi, áhættumat með Stiki OutGuard.
- Velferðarsvið Reykjavíkurborgar
-
Innleiðing ISO/IEC 27002, gerð skipulagshandbókar á vefformi, áhættumat með Stiki OutGuard.
|