Breska staðlastofnunin (BSI) hefur staðfest vottanir Stika um gæðavottun (ISO 9001) og upplýsinga-, öryggis- og stjórnkerfi (ISO 27001) næsta árið.
ISO staðlarnir eru alþjóðlegir og viðurkenndir um allan heim. Stiki er fyrsta fyrirtækið á Íslandi sem bæði varð ISO 9001 og ISO 27001 vottað. Stiki er einnig eina fyrirtækið í heiminum sem er ACP meðliðmur utan Bretlands og er Stiki félagsmaður nr. 140. Stiki hlaut fyrst vottanir árið 2002.
Stiki telur það afar mikilvægt að í framleiðslu og þróun á hugbúnaði sé lögð áhersla á að farið sé eftir ýtrustu gæðakröfum og að upplýsingaöryggi fyrirtækisins sé til fyrirmyndar. Það hefur best sýnt sig í fjölmiðlun síðustu misserin hversu mikilvægt er að gæta vel að meðferð upplýsinga og trúnaðargagna.
Stiki hefur verið leiðandi í ráðgjöf við innleiðingu ISO 27001 staðla á Íslandi og aðstoðar fyrirtæki jafnframt við innleiðingu á fjölmörgum öðrum stöðlum. Stiki framleiðir áhættugreiningar hugbúnaðinn RM Studio sem nýtist fyrirtækjum, stórum sem smáum, að öðlast eða viðhalda vottun samkvæmt alþjóðlegum stöðlum..