RAI Heilsumatskerfi


Fyrir notendur RAI heilsumats

InterRAI MDS 2.0 - Heildrænt hjúkrunarheimilismat

InterRAI MDS 2.0 - Heildrænt hjúkrunarheimilismat er skráningarkerfi fyrir dvalar- og hjúkrunarheimili til þess að meta ástand einstaklinga, gæði og kostnað þjónustu á dvalar- og hjúkrunarheimilum.
InterRAI-mat, Raunverulegur Aðbúnaður Íbúa (Residential Assessment Instrument) er aðferð til þess að meta gæði og kostnað þjónustu við íbúa á dvalar- og hjúkrunarheimilum. Aðferðin stuðlar þannig að því að bæta aðbúnað og þar með heilsufar íbúa heimilanna.

Alþjóðleg aðferðafræði við gæðamat á þjónustu á dvalar- og hjúkrunarheimilum

Aðferðin varð til í Bandaríkjunum árið 1986 en hefur síðan verið þýdd og staðfærð víða um heim í fjölþjóðlegu samstarfi sem nefnist InterRAI. Þátttaka Íslands í þessu samstarfi hófst 1993. Notkun þessarar aðferðar er háð höfundarrétti en heilbrigðisráðuneytið hefur gert samning við InterRAI sem heimilar Stika notkun RAI-aðferðarinnar í þessu nýja upplýsingakerfi.
Samkvæmt reglugerð er skylt að meta heilsufar og aðbúnað árlega og byggja matið á RAI-aðferðinni.
Heildrænt hjúkrunarheimilismat er kerfið sem er hýst miðlægt hjá Stika og þjónar öllum dvalar- og hjúkrunarheimilum um landsins. Landlæknisembættið hefur með höndum eftirlitsaðgang að gögnum kerfisins en heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið notar kerfið til þess að meta kostnað við þjónustu heimilanna.
Skoðið ,,Case Studies" um hjúkrunarheimilin Sunnuhlíð og Sóltún sem nota RAI Nursing Home hugbúnaðinn.
Sunnuhlíð
Sóltún

InterRAI HC – Heildrænt heimaþjónustumat

InterRAI HC - Heildrænt heimaþjónustumat er matskerfi fyrir heimahjúkrun og félagslega heimaþjónustu sveitarfélaga og heilbrigðisstofnana.
InterRAI-mat (Raunverulegur Aðbúnaður Íbúa) er aðferð til þess að meta heilsufar og aðbúnað eldri borgara sem þiggja heimahjúkrun eða félagslega heimaþjónustu.
InterRAI HC er systurkerfi InterRAI MDS 2.0 - Heildræna hjúkrunarheimilismatsins. En bæði kerfin nota hina stöðluðu aðferðarfræði InterRAI-matslyklakerfisins til þess að meta gæði samkvæmt staðlaðri aðferðarfræði InterRAI-matskerfisins.
Matskerfið er notað víða um land en búið er að bjóða öllum ummönnunarstofnunum og sveitarfélögum sem sinna heimahjúkrun og félagslegri heimaþjónustu að taka kerfið í notkun.
Aðferðin varð til í Bandaríkjunum árið 1986 en hefur síðan verið þýdd og staðfærð víða um heim í fjölþjóðlegu samstarfi sem nefnist Inter-RAI. Þátttaka Íslands í þessu samstarfi hófst 1993. Notkun aðferðarinnar er háð höfundarrétti en heilbrigðisráðuneytið hefur gert samning við Inter-RAI sem heimilar Stika notkun RAI-aðferðarinnar í þessu nýja upplýsingakerfi.
Samkvæmt reglugerð er skylt að meta heilsufar og aðbúnað reglulega og byggja matið á RAI-aðferðinni.
Skoðið www.interrai.org til að fá nánari upplýsingar um alþjóðlega inter RAI verkefnið.

InterRAI PAC – Heildrænt mat vegna endurhæfingar

InterRAI PAC - Heilsdrænt mat vegna endurhæfingar er notað til að meta getu og færni eldri sjúklinga á öldrunarsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss.
InterRAI PAC er notað til að styðja við áætlanagerðir og gæðamál í öldrunarþjónustu.
InterRAI PAC er systurkerfi annarra InterRAI kerfa Stika, en öll kerfin nota hina stöðluðu InterRAI - aðferðarfræði.
InterRAI aðferðin varð til í Bandaríkjunum árið 1986 en hefur síðan verið þýdd og staðfærð víða um heim í fjölþjóðlegu samstarfi. Þátttaka Íslands í þessu samstarfi hófst 1993. Notkun aðferðarinnar er háð höfundarrétti en heilbrigðisráðuneytið hefur gert samning við Inter-RAI sem heimilar Stika notkun RAI-aðferðarinnar í þessu nýja upplýsingakerfi.
Skoðið www.interrai.org til að fá nánari upplýsingar um alþjóðlega InterRAI verkefnið.

InterRAI MH – Heildrænt geðheilbrigðismat

InterRAI MH - Heildrænt geðheilbrigðismat er skráningarkerfi geðheilbrigðismats. Kerfið er notað til að meta aðbúnað sjúklinga á geðsviði Landspítala-háskólasjúkrahúss.

InterRAI MH er systurkerfi annarra InterRAI kerfa Stika, en öll kerfin nota hina stöðluðu InterRAI - aðferðarfræði.

InterRAI - aðferðafræðin

Aðferðin varð til í Bandaríkjunum árið 1986 en hefur síðan verið þýdd og staðfærð víða um heim í fjölþjóðlegu samstarfi sem nefnist InterRAI. Þátttaka Íslands í þessu samstarfi hófst 1993. Notkun aðferðarinnar er háð höfundarrétti en heilbrigðisráðuneytið hefur gert samning við InterRAI sem heimilar Stika notkun RAIaðferðarinnar í þessu nýja upplýsingakerfi.

Skoðið www.interrai.org til að fá nánari upplýsingar um alþjóðlega inter RAI verkefnið.