Nýsköpunartorg verður haldið í Háskólanum í Reykjavík 23. og 24. maí
Nýsköpunartorgiðverður haldið í Háskólanum í Reykjavík dagana 23. og 24 maí. Um er að ræða fagráðstefnu um starfsumhverfi og uppbyggingarferli nýsköpunarfyrirtækja og sýningu þar sem fyrirtæki og stofnanir kynna árangur í nýsköpun. Nýsköpunartorgið er haldið í tengslum við 20 ára afmæli Samtaka iðnaðarins og 10 ára afmæli Tækniþróunarsjóðs. Samtök iðnaðarins, Rannís, HR, Einkaleyfastofa, Ský og fleiri aðilar sem tengjast nýsköpunarumhverfinu á Íslandi standa fyrir Nýsköpunartorginu.
Fagráðstefna – föstudaginn 23. maí kl. 8.45-10.00:
Fagráðstefnan hefst með sameiginlegri dagskrá í Sólinni en síðan verða haldnar málstofur í sex stofum háskólans. Annars vegar eru þrjár línur um uppbyggingarferli nýsköpunarfyrirtækja þar sem fyrirtækjum er skipt í deildir eftir þroskastigi og hins vegar málstofur um tengda stoðþjónustu s.s. vörumerki, einkaleyfi og staðla. Gestir ráðstefnunnar geta valið sér þá fyrirlestra sem mestan áhuga vekja. Ráðstefnan er opin öllum en það þarf að skrá sig fyrirfram á hana. -> Nánari upplýsingar og skráning á www.si.is
Spennandi Nýsköpunartorg fyrir alla fjölskylduna – Laugardaginn 24. maí kl. 11.00-17.00
Öllum þeim sem áhuga hafa á nýsköpun og tækni verður boðið á Nýsköpunartorgið. Um 70 nýsköpunarfyrirtæki og stofnanir kynna vörur og þjónustu en að auki verða margvíslegar uppákomur fyrir alla fjölskylduna, m.a.
Frítt er inn á Nýsköpunatorgið og á það við báða daganna!